Saturday, December 12, 2009

Sunnudagsæfingin

Sunnudagsæfingin fellur niður þessa helgi þar sem margar stelpur eru á unglingalandsliðsæfingu.
Kveðja.
Siggi Sig.

Sunday, November 29, 2009

Æfingar framundan.

Engin æfing verður á mánudagskvöldið þar sem stelpurnar eru flestar þreyttar eftir erfiða helgi. Á þriðjudag vil ég að allar stelpurnar mæti kl. 20:00 án æfingafatnaðar. Við ætlum að halda fund og reyna að hrista af okkur slenið og mæta fersk á æfingarnar framundan. Nú er gott frí framundan og mikilvægt að nýta það til að byggja liðið upp fyrir átökin á nýju ári.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Mótið hjá 9. flokki.

Við lékum í fjölliðamóti 9. flokks um helgina. Mótið fór fram í Smáranum og var að mörgu leiti hið skemmtilegasta mót. Stelpurnar stóðu sig gríðarlega vel í fyrsta leik á móti Grindavík, voru yfir eftir fyrsta leikhluta 9:2 og héldu forystu fram í seinni hálfleik en þá seig Grindavík fram úr. Þrátt fyrir það var mitt lið allan tímann inn í leiknum en töpuðu að lokum 47: 37. Sannarlega fínn leikur hjá stelpunum sem ég er stoltur af.
Næsti leikur var gegn Njarðvíkingum og þróaðist hann svipað framan af. en í 3. leikhluta hrundi okkar leikur og endaði viðureignin með sigri Njarvíkinga 66:46. Stelpurnar sýndu í þessum 2 leikjum að þær vantar einungis herslumuninn til að eiga heima í A-riðli. Í þessum leik meiddist Margrét og var því ekki með á móti Breiðablik og Keflavík. Þrátt fyrir það léku stelpurnar af skynsemi og á köflum feikilega vel gegn Blikunum, en töpuðu samt 66:46. Í þessum leik var það Sara sem fór fyrir liðinu og skoraði 25 stig ,hirti 23 fráköst og varði 5 skot þrátt fyrir að hafa leikið sem bakvörður í fjarveru Möggu.
Leikurinn á móti Keflavík fór eins og búast mátti við búast Keflvíkingar léku eins og við værum með fullskipað úrvalslið og unnu örþreytt Valsliðið 81:19.
Þið megið ekki láta þau úrslit á ykkur fá stelpur þið voruð aðeins 6 í tveimur síðustu leikjunum og lékuð á móti fullskipuðu liði Keflavíkur í fyrri leik þeirra þennan daginn. Við erum ekki fyrsta liðið sem fer illa út úr viðureign við þær. Gleymið þessum leik og munið góðu kaflana úr hinum leikjunum.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Mótið hjá 9. flokki.

Friday, November 27, 2009

Leikir hjá 9.fl.

Við leikum í Smáranum um helgina. Leikirnir verða sem hér segir og þið eigið að mæta 45 mínútum fyrir leik.


28-11-2009 12:30
gegn Grindavík 9. fl
-
28-11-2009 15:00
gegn Njarðvík 9. fl
-
29-11-2009 09:00
gegn Breidablik 9. fl
-
29-11-2009 11:30
gegn Keflavík 9. fl
-
//
Biðst afsökunar hversu seint þetta kemur inn hjá mér.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Thursday, November 26, 2009

Bikarleikur

Á föstudagskvöldið kl. 19:30 verður leikur á móti Njarðvík í 10. fl. Þetta er leikur í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar.Stelpurnar eiga að mæta kl. 18:45.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Saturday, November 21, 2009

Margrét Ósk með 8 þrista.

Í dag var leikið í 10 flokki kvenna í Vodafone-Höllinni. Við byrjuðum mótið á því að vinna sterkt lið Hrunamanna með 44 stigum gegn 37. Næsta leik töpuðum 34 : 45 fyrir KR þar sem Sara var fjarri góðu gamni þar sem hún meiddist í leiknum gegn Hrunamönnum. Þriðji leikurinn var gegn KFÍ. Stelpurnar léku frábærlega í þessum leik og geisluðu hreinlega af leikgleði en þó Magga sínu mest. Hún gerði sér lítið fyrir og setti niður 8 þriggjastiga skot. Hún þurfti aðeins 14 tilraunir og verður þetta að teljast mjög fín nýting. Sérstaklega þegar við lítum á það að hún er 8. flokks leikmaður. Frábært hjá þér Magga.
Úrlit leikjanna fylgja hér á eftir.

Valur 44 : UMFH 37
KFÍ 35 : KR 65
KFÍ 37 : UMFH 73
Valur 34 : KR 45
KR 12 : UMFH 54
Valur 60 : KFÍ 44


Til gamans má geta þess að Magga skoraði 11 þrista í dag og 6 stig þar fyrir utan.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Thursday, November 19, 2009

Æfing á föstudag.

Engin styrktaræfing verður í dag en þi staðin verður æfing í sal 3 kl. 20:30 þar sem farið verður í gegnum kerfi og vörn.

Kveðja.
Siggi Sig.

Mót hjá 10 flokki á laugardaginn.

Á laugardaginn verður mót hjá okkur í Vodafone-höllinni. Fyrsti leikur byrjar kl. 12:00 og síðan verða leikirnir eins og sést hér á töflunni. Mæting verður kl. 11:15.

12:00 Valur-Hrunamenn

13:15 KFÍ-KR

14:30 KFÍ-Hrunamenn

15:45 Valur-KR

17:00 KR-Hrunamenn

18:15 Valur-KFÍ

Ég hvet alla foreldra til að mæta og helst að þið dragið með ykkur einhverja ættingja. Stelpurnar geta spilað fínan körfubolta og þá er þetta fyrirtaks skemmtun , ókeypis það að auki, sem kemur sér vel þessa dagana.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Friday, November 13, 2009

Ritaraborð hjá 8. flokk drengja.

Stelpurnar í 8-10fl. ætla að taka að sér ritaraborðið á fjölliðamóti 8 fl. drengja. Hér er listi yfir þær sem eiga að mæta og hvenær leikirnir byrja. Stelpurnar eiga að mæta ísíðasta lagi 15 mínútum fyrir leik.
Laugardagur.
12:00 Jenny, Begga og Sara.
13:00 Jenny, Begga og Sara.
14:00 Elsa, Begga og Sara.

15:00 Inga, Thelma og Björg.
16:00 Inga, Thelma og Björg.

17:00 Ragnheiður, Elsa og Sara.
18:00 Ragnheiður, Elsa og Sara.

Sunnudagur.

9:00 Selma, Sara og Fanney.
10:00 Selma, Sara og Fanney.
11:00 Selma, Sara og Fanney.

Hlakka til að sjá ykkur. Hvet einnig alla foreldra til að mæta og hvetja Valsliðið til dáða. Til gamans má geta þess að Margrét Ósk leikur með strákunum og verður spennandi að fylgjast með hvernig hún plumar sig með þeim.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Wednesday, November 11, 2009

Æfingaleikur.

Fimmtudagskvöldið kl. 21:30 leikum við æfingaleik við Ármann-Þrótt í Laugardalshöllinni. Þetta verður fínt tækifæri til að jafna sig á útreiðinni sem við fengum á móti Breiðablik um daginn. Ég vil að allar stelpurnar mæti þá þetta sé svolítið seint en ég ætla að biðja um að við verðum búin kl. 10:30. Mæting í Höllina á að vera kl. 21:00.

Kveðja.
Siggi Sig.

Wednesday, November 4, 2009

Bikardráttur

Búið að draga í bikarnum.

9. flokkur: sitjum hjá í fyrstu umferð. Förum beint áfram í 8 liða úrslit
10. flokkur: Valur-Njarðvík

Ekki er komin dagssetning á þessa leiki.

Tuesday, October 27, 2009

Valur : Breiðablik.

Við mættum Breiðablik á mánudagskvöldið á heimavelli og sennilega er best að allir gleymi þeim leik sem fyrst. Við töpuðum illa 19 : 54. Engin af okkur virtist vera tilbúin í leikinn og er ég þar ekki undanskilinn. Við byrjuðum afskaplega illa en þegar upp var staðið reyndist fyrsti leikhluti vera sá skársti í leiknum. En svona er körfuboltinn og ekkert við því að gera annað en að æfa vel og mæta betur stemmdur í næstu turneringu. Það býr hellingur í mínu liði og nú er bara að hrista af sér slenið , loka eyrunum og hætta að láta mótlætið fara í taugarnar á sér.

Þið getið svo miklu miklu meira stelpur.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

P.S.
Á fimmtudag í næstu viku kl: 20:30 mætum við Ármenningum í Laugardalshöllinni. Þar gefst okkur tækifæri til að laga það sem hefur farið úrskeiðis hjá okkur.

Sunday, October 25, 2009

Lokaleikur Ísafjarðarmótsins.

Í kvöld, mánudag, mætum við Breiðablik í Vodafone-höllinni. Þetta er lokaleikur mótsins sem við tókum þátt í á Ísafirði um daginn. Stelpurnar eiga að mæta kl. 20:00. Við eigum góða möguleika í þessum leik ef við mætum vel stemmd, og stelpurnar eru tilbúnar að spila eins og 9. flokkurinn gerði um helgina. Sjáumst hress og kát.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Frábær helgi.

9. flokkur kvenna var að leika á Íslandsmótinu um helgina í DHL höllinni. fyrsti leikurinn var á móti Heklu og gekk frekar illa hjá mínum stúlkum framan af leiknum. Þegar tók að líða á annan hluta leiksins fór leiðir að skilja og mínar dömur unnu öruggan sigur 45-29. Sara skoraði 13 stig, Elsa 12 og Selma 9 .
Næsti leikur var gegn löskuðu liði Kormáks þar sem einhverjar urðu eftir heima sökum flensu. Ég leifði yngri stelpunum að leika mikið í þessum leik og unnum við hann 33 - 27. Elsa skoraði 10 stig, Sara 7, Magga 5 og Morgan 4.
Fyrsti leikur sunnudagsins var gegn Fjölni og var töluverð taugaveiklun hjá okkar liði fyrir hann. Enda fór það svo að leikurinn var í járnum lengst af en við höfðum sigur að lokum 46 - 40. Elsa skoraði 16 stig, Magga 14, Sara 10 og Selma 8. Elsu þáttur í þessu móti var greinilega hafinn.
Lokaleikurinn var gegn KR sem eins og við voru ósigraðar. Því var þetta hreinn úrslitaleikur. Ég reiknaði með erfiðum leik þar sem ekki yrði hægt að draga andann. En þessar stelpur koma sífelt á óvart. Þær gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn með sóma. Við getum sagt að þær hafi gert út um hann í fyrsta leikhluta og litu aldrei til baka eftir það. Til merkis um hvernig þær spiluðu þá tók ég ekkert leikhlé allan leikinn. Að öðrum ólöstuðum var það Elsa sem átti stórleik, hirti ógrynni frákasta og skoraði 22 stig. Aðrar sem skoruðu voru Sara með 16, Magga 11 og Selma 6.

Þær stóðu sig frábærlega stelpurnar og Elsa var tvímælalaust langbesti maður mótsins. Frábært hjá þér Elsa.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Friday, October 23, 2009

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.
Bestu kveðjur.
Valur.

Thursday, October 22, 2009

Æfingin á föstudagskvöld.

Ég gleymdi að segja klukkan hvað æfingin verður á föstudagskvöld. Hún verður um leið og leiknum hjá meistaraflokki lýkur eða rétt fyrir 9. Þetta verður létt æfing þar sem verður aðallega farið í gegnum kerfi og reynt að stilla upp góðri vörn.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Wednesday, October 21, 2009

Aukaæfing.

Við verðum með aukaæfingu á föstudagskvöldið vegna 9.flokksmótsins um helgina. Hér er slóðin á mótasíðuna : http://www.kki.is/mot/mot_1500003258.htm .
Styrktaræfingin verður samt um daginn fyrir stelpurnar sem ekki eiga að keppa um helgina. Þið ættuð endilega að mæta stelpur við tökum vonandi þátt í erfiðum riðli en til þess þurfum við að vinna Breiðablik í lokaleik mótsins sem var á Ísafirði um síðustu helgi. Sá leikur verður á Hlíðarenda á mánudagskvöldið kl 20:30. Eins og stelpurnar spiluðu á Ísafirði eiga þær leikandi að geta klárað þann leik.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.

Bestu kveðjur.
Valur.

Tuesday, October 20, 2009

Flottar stelpur sem við eigum.

Ég rak augun í stutta grein á heimasíðu KFÍ. Miðað við það sem þar er skrifað getum við verið stolt af stelpunum. Hér er slóðin á greinina. http://kfi.is/frettir/Frabaer_helgi_ad_baki_hja_KFI/

Kveðja.
Siggi Sig.

Saturday, October 17, 2009

Fréttir frá Ísafirði.

Ferðin gekk vel hjá okkur í dag. Þó leiðin hafi styst um 42 km í síðustu viku þá er þetta langt ennþá. Ferðin sat greinilega í okkur til að byrja með. Við vorum í eintómu strögli og veseni með Hörð til að byrja með og var jafnt á öllum tölum en Hörður með frumkvæðið. Í þriðja leikhluta hristum við af okkur sliðruorðið og gerðum út um leikinn. Þannig að leikurinn sem átti að verða léttur reyndist hin mesta raun fyrir okkur. Í fjórða leikhluta gat ég síðan leift mér að hvíla lykilleikmenn og unnum við leikinn 40:24. Þrátt fyrir að við höfum leikið illa þá verður það ekki tekið frá Harðarstelpum að þeim hefur farið heilmikið fram. Vonandi halda þær áfram á sömu braut.
Eftir 25 mínútna hvíld mættum við KFÍ. Það hafa alltaf verið skemmtilegir og spennandi leikir en í dag voru mínar stelpur greinilega komnar í gang og gerðu sér lítið fyrir og kláruðu leikinn í fyrri hálfleik. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 5:14 fyrir okkur í hálfleik 16:29 og ég gat farið að leifa mér þann lúxus að leifa öllum að spila. Þrátt fyrir að ég skipti grimmt inná jukum við forskotið og vorum komin í 25:46 eftir 3. hluta og unnum síðan leikinn 38:53.
Núna erum við í pizzuveislu á bestu sjoppu landsins (samkvæmt könnun) og erum síðan á leið í félagsmiðstöð grunnskólans þar sem við gistum í nótt. Kl. 10 í fyrramálið leikum við síðan æfingaleik við KFÍ. og leggjum af stað heim um kl.13 .

Bestu kveðjur.
Ferðalangar.

Friday, October 16, 2009

Aukaæfing.

Í kvöld kl. 20:30 verður aukaæfing hjá okkur í sal 3. Þetta er gamli æfingatíminn en ég hef æfinguna til kl. 21:30 . Við þurfum aðallega að rúlla aðeins í gegnum kerfi og brína vörnina aðeins.
Kv.
Siggi Sig.

Tuesday, October 13, 2009

Fundur.

Eftir æfingu í kvöld ,miðvikudag, ætla ég að hafa stuttan fund þar sem ég læt vita hvernig ferðinn verður háttað ,hvað stelpurnar þurfa að taka með , hver kostnaðurinn verður og reyni eftir fremsta megni að svara þeim spurningum sem upp kunna að koma. Fundurinn byrjar kl. 20:00. Vona að sem flestir sjái sér fært að kíkja. Þetta verður vonandi stuttur og gagnlegur fundur.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Monday, October 12, 2009

Ísafjörður.

Þá nálgast ferðahelgin. Nú er nokkuð ljóst að við munum líklega leigja minibus líkt og þegar við fórum til Patró síðasta vetur. Leikjaniðurröðun verður hagrætt þannig að henti okkur að leggja af stað á laugardagsmorgni og svo ættum við að komast af stað heim uppúr hádegi á sunnudegi aftur. Ég veit ekki alveg hversu mikill kostnaðurinn verður en veit þó að hann verður einungis brot af því sem kostar að fljúga. Núna reynir á foreldraráðið. Mig vantar einhvern til að koma með mér. Í fyrsta lagi til að leysa mig af við aksturinn og síðan til að stelpurnar fái ekki yfir sig nóg af mér. Nú hef ég ekki heyrt hverjar koma örugglega með og væri fínt að heyra í foreldrum annaðhvort í pósti , síma eða sms. Nægar eru boðleiðirnar. Á miðvikudag eftir æfingu væri svo fínt að hitta foreldrana eftir æfingu ( kl 20:00 ) þá ættu allir lausir endar að vera hnýttir. Vona að ég heyri frá ykkur sem allra fyrst.

Kv. Siggi Sig.

Friday, October 9, 2009

Samskipti á blogginu.

Ég hljóp aðeins á mig þegar ég sagði að þið gætuð sett innn athugasemdir við bloggið hjá mér. Það þarf víst sérstakan aðgang til þess. Til þess að fá þann aðgang þurfið þið að stofna gmail netfang sem er frítt og þið finnið leiðina efst á google.is eða com. síðan getið þið sent mér netfangið ykkar og ég bið Ragnhildi eða Lýð að opna á ykkar aðgang þá getur foreldraráðið líka skrifað greinar á bloggið.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Ferð til Ísafjarðar.

Ég minni á að um næstu helgi förum við til Ísafjarðar á fyrsta fjölliðamótið í vetur. Þetta er löng ferð en það jákvæða er að þá eigum við líklega bara eina langa ferð eftir í 9. flokki. Hin mótin verða líklega í þægilegri fjarlægð. Ég vil benda á að ég sendi foreldrunum póst ef einhver hefur ekki fengið hann bið ég ykkur um að hringja í mig því ég er ekki viss um að ég hafi öll póstföng ennþá. Stelpur ef þið lesið þetta minnið foreldra ykkar á að kíkja á tölvupóstinn. Að lokum bendi ég á að æfingin á sunnudag verður kl. 14:10 vegna móts í húsinu. Það er mjög áríðandi að þið mætið á allar æfingar í næstu viku vegna mótsins. Þar fyrir utan er mikilvægt að mæta á allar æfingar.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Saturday, October 3, 2009

Mót í 10. flokki.

Helgina 17. og 18. október þurfum við að leggja land undir fót og fara til Ísafjarðar þar sem við tökum þátt í fyrsta fjölliðamóti vetrarins í 10. flokki. Liðin sem taka þátt í mótinu eru Valur , Hörður , Breiðablik og KFÍ. Ég var bara að frétta þetta fyrir helgi og veit því ekkert um hvernig við komum okkur á staðinn en ég mun kanna hvernig Breiðablik fer og þá hvort hægt er að slá saman í rútu eða hvort verður frekar flogið. Ég læt vita strax og ég veit eitthvað meira.
Bestu kveðjur.
Siggi.

Wednesday, September 30, 2009

Æfingaleikurinn við KR.

Við spiluðum æfingaleik við KR í stúlknaflokki í kvöld. Stelppurnar stóðu sig frábærlega þó þær væru fáliðaðar. Ég hafði ekki nema 6 stelpur og þær stóðu sig allar vel þrátt fyrir góða baráttu og fínan varnarleik þá gekk frekar illa hjá okkur að skora og endaði leikurinn 49 : 38 fyrir KR. Það verður að teljast nokkuð gott þar sem KR var með meistaraflokksstelpu í sínu liði og auk þess pressuðu þær mikinn hluta af leiknum. Það hefur greinilega verið einhver hrollur í þeim á móti Breiðablik um daginn og ég vona að þetta sé á réttri leið núna.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Tuesday, September 29, 2009

Æfingaleikur 30.09

Stelpurnar eiga að mæta í DHL höllina (KR húsið) kl. 20:30 og leikurinn byrjar eins fljótt og hægt er.

Kv. Siggi Sig.

Mæting og upplýsingar um æfingar.

Ég vil minna ykkur á að þið getið alltaf hringt í mig til að láta vita ef þið komist ekki á æfingu. Ekki ef þið nennið ekki á æfingu.
Það er rétt tímatafla hér á blogginu að öðru leiti en því að föstudagarnir breytast.

Kv. Siggi Sig.

Mæting og upplýsingar um æfingar.

Leikur á miðvikudag

Leikurinn verður strax á eftir meistaraflokksleik hjá KR sem byrjar kl. 7. Þannig að við byrjum trúlega vel fyrir 9. Vonandi verður hann búinn í síðasta lagi hálfellefu. Þetta átti að vera á æfingatíma hjá KR stelpunum en þessi leikur á undan reddar þessu fyrir okkur. Ég er alveg sammála þessu með tímann og við sjáum að það eru fleiri í vandræðum en við.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Monday, September 28, 2009

Æfingar á föstudögum

Ég mun á föstudaginn nk. (2. okt) verða með fyrstu styrktaræfinguna hjá ykkur í vetur.
Prógrammið miðar að því að styrkja helstu vöðva sem notaðir eru við körfuknattleiksiðkun (kviður, bak, rass, læri og kálfar) og mun ég reyna að líkja æfingunum við þær hreyfingar sem eru í körfuknattleik.
Æfingarnar eru frá 16:30-18:00.
Eins og segir þá mun ég verða með ykkur til að byrja með fyrstu skiptin en svo mun Siggi sjá um að fylgja æfingunum eftir. Prógrammið á svo eflaust eftir að breytast eitthvað þegar líður á veturinn til þess að auka fjölbreytni æfinganna.

Saturday, September 26, 2009

Athugasemdir

Vinsmlega verið dugleg að setja inn athugasemdir við bloggið. Þannig verða samskiptin betri og betri.

Kv. Siggi Sig.

Föstudagsæfingar.

Föstudagsæfingarnar hafa lagst illa í fólk og við verðum að hlusta á óánægjuraddirnar. Þess vegna höfum við ákveðið að leggja þær niður. Í staðin þá mun Lýður búa til styrktarprógram og geta stelpurnar þá mætt í tækjasalinn í Vodafonehöllinni. Hann ætlar að vera tilbúinn með prógrammið í vikunni og trúlega verða æfingarnar á föstudögum kl. 4. Ég mun láta vita strax og þetta er klárt og þá hver endanlegur tími verður. Vona innilega að þetta verði til þess að sætta alla, því það er virkilega okkar vilji.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Thursday, September 24, 2009

Fösturdagsæfing.

Á morgun 25 september verður æfingin okkar kl. 19:00. Meistarflokkur kv. er að keppa og við fáum tímann þeirra á morgun. Þá verður æfingin bún kl. 9 sem ætti að vera fínt þó það sé þetta eina skipti.
Kv. Siggi Sig.

Wednesday, September 23, 2009

Æfingaleikur við KR

Æfingaleikurinn sem við ætluðum að leika við KR í kvöld verður eftir viku. Þannig að æfingin í dag verður á réttum tíma.
sjáumst hress.
kv. Siggi Sig.

Wednesday, September 16, 2009

Æfingar um helgina.

Æfingarnar á föstudag og sunnudag falla niður vegna körfuboltamóts. En í staðin verður æfing á sunnudag kl 16:30. Mjög áríðandi er að allar stelpurnar mæti þá vegna þess að við leikum æfingaleik við Breiðablik á mánudagskvöldið á æfingatíma. Þær verða með 9. flokkinn en ég mun nota allar mínar stelpur. KR hafði ssamband við mig í dag og bað um leik og ég samþykkti að leika við þær í KR húsinu á miðvikudag á þeirra æfingatíma kl 21:40. Ég hafði þó þann fyrirvara að ég þyrfti að heyra í ykkur.
Vonandi hristist hópurinn vel saman um helgina þannig að við mætum tvíelfd til æfinga í næstu viku.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Tuesday, September 15, 2009

Gaman, gaman. út í óvissuna.
Takið laugardaginn frá og mætið í Vodafonehöllina kl. 12 á hádegi. Þið egið að vera vel klæddar og og í góðu skapi. Við leggjum af stað frá höllinni rúmlega 12 og förum ...... .... ...... en ........ ........ .......... allir .. .... ...... ...............aldrei að vita ........ .......að .. ............ og ..... .... ... . ... þegar .... ..... ....... ..... ... ... að sjálfsögðu ...... ....... .... .. .... .. .... .. .. . .. .. .. .. og förum svo heim sennilega um 6 leitið. Kostnaður við þetta verður 2500 kr. sem þið þurfið að hafa með ykkur.
Kveðja.
Foreldraráð 8.- stúlknaflokks kvenna.

Sunday, September 13, 2009

Foreldrafundurinn.

Ég er búin að ná í alla foreldra og það ætla allir að mæta þannig að tíminn stendur. Mánudagur
kl. 19:30

Sjáumst.
Siggi Sig.

Friday, September 11, 2009

Foreldrafundur.

Á mánudaginn klukkan 19:30 ætla ég að hafa foreldrafund í Valsheimilinu. Þar sem mætingin að undanförnu hefur verið vægast sagt frekar slök finnst mér áríðandi að allir foreldrar mæti og við getum fundið út hvað veldur. Ég geri mér grein fyrir því að vel getur verið að stelpurnar séu eitthvað ósáttar við mig og mínar æfingar en þá er mikilvægt að það komist til skila þannig að ég geti brugðist við. Ég er ekki hafin yfir gagnrýni.
Einnig þarf að ræða einhverskonar uppákomu fyrir hópinn ,því þetta þarf líka að vera gaman.
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Siggi Sig.

Monday, January 19, 2009