Wednesday, September 30, 2009

Æfingaleikurinn við KR.

Við spiluðum æfingaleik við KR í stúlknaflokki í kvöld. Stelppurnar stóðu sig frábærlega þó þær væru fáliðaðar. Ég hafði ekki nema 6 stelpur og þær stóðu sig allar vel þrátt fyrir góða baráttu og fínan varnarleik þá gekk frekar illa hjá okkur að skora og endaði leikurinn 49 : 38 fyrir KR. Það verður að teljast nokkuð gott þar sem KR var með meistaraflokksstelpu í sínu liði og auk þess pressuðu þær mikinn hluta af leiknum. Það hefur greinilega verið einhver hrollur í þeim á móti Breiðablik um daginn og ég vona að þetta sé á réttri leið núna.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Tuesday, September 29, 2009

Æfingaleikur 30.09

Stelpurnar eiga að mæta í DHL höllina (KR húsið) kl. 20:30 og leikurinn byrjar eins fljótt og hægt er.

Kv. Siggi Sig.

Mæting og upplýsingar um æfingar.

Ég vil minna ykkur á að þið getið alltaf hringt í mig til að láta vita ef þið komist ekki á æfingu. Ekki ef þið nennið ekki á æfingu.
Það er rétt tímatafla hér á blogginu að öðru leiti en því að föstudagarnir breytast.

Kv. Siggi Sig.

Mæting og upplýsingar um æfingar.

Leikur á miðvikudag

Leikurinn verður strax á eftir meistaraflokksleik hjá KR sem byrjar kl. 7. Þannig að við byrjum trúlega vel fyrir 9. Vonandi verður hann búinn í síðasta lagi hálfellefu. Þetta átti að vera á æfingatíma hjá KR stelpunum en þessi leikur á undan reddar þessu fyrir okkur. Ég er alveg sammála þessu með tímann og við sjáum að það eru fleiri í vandræðum en við.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Monday, September 28, 2009

Æfingar á föstudögum

Ég mun á föstudaginn nk. (2. okt) verða með fyrstu styrktaræfinguna hjá ykkur í vetur.
Prógrammið miðar að því að styrkja helstu vöðva sem notaðir eru við körfuknattleiksiðkun (kviður, bak, rass, læri og kálfar) og mun ég reyna að líkja æfingunum við þær hreyfingar sem eru í körfuknattleik.
Æfingarnar eru frá 16:30-18:00.
Eins og segir þá mun ég verða með ykkur til að byrja með fyrstu skiptin en svo mun Siggi sjá um að fylgja æfingunum eftir. Prógrammið á svo eflaust eftir að breytast eitthvað þegar líður á veturinn til þess að auka fjölbreytni æfinganna.

Saturday, September 26, 2009

Athugasemdir

Vinsmlega verið dugleg að setja inn athugasemdir við bloggið. Þannig verða samskiptin betri og betri.

Kv. Siggi Sig.

Föstudagsæfingar.

Föstudagsæfingarnar hafa lagst illa í fólk og við verðum að hlusta á óánægjuraddirnar. Þess vegna höfum við ákveðið að leggja þær niður. Í staðin þá mun Lýður búa til styrktarprógram og geta stelpurnar þá mætt í tækjasalinn í Vodafonehöllinni. Hann ætlar að vera tilbúinn með prógrammið í vikunni og trúlega verða æfingarnar á föstudögum kl. 4. Ég mun láta vita strax og þetta er klárt og þá hver endanlegur tími verður. Vona innilega að þetta verði til þess að sætta alla, því það er virkilega okkar vilji.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Thursday, September 24, 2009

Fösturdagsæfing.

Á morgun 25 september verður æfingin okkar kl. 19:00. Meistarflokkur kv. er að keppa og við fáum tímann þeirra á morgun. Þá verður æfingin bún kl. 9 sem ætti að vera fínt þó það sé þetta eina skipti.
Kv. Siggi Sig.

Wednesday, September 23, 2009

Æfingaleikur við KR

Æfingaleikurinn sem við ætluðum að leika við KR í kvöld verður eftir viku. Þannig að æfingin í dag verður á réttum tíma.
sjáumst hress.
kv. Siggi Sig.

Wednesday, September 16, 2009

Æfingar um helgina.

Æfingarnar á föstudag og sunnudag falla niður vegna körfuboltamóts. En í staðin verður æfing á sunnudag kl 16:30. Mjög áríðandi er að allar stelpurnar mæti þá vegna þess að við leikum æfingaleik við Breiðablik á mánudagskvöldið á æfingatíma. Þær verða með 9. flokkinn en ég mun nota allar mínar stelpur. KR hafði ssamband við mig í dag og bað um leik og ég samþykkti að leika við þær í KR húsinu á miðvikudag á þeirra æfingatíma kl 21:40. Ég hafði þó þann fyrirvara að ég þyrfti að heyra í ykkur.
Vonandi hristist hópurinn vel saman um helgina þannig að við mætum tvíelfd til æfinga í næstu viku.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Tuesday, September 15, 2009

Gaman, gaman. út í óvissuna.
Takið laugardaginn frá og mætið í Vodafonehöllina kl. 12 á hádegi. Þið egið að vera vel klæddar og og í góðu skapi. Við leggjum af stað frá höllinni rúmlega 12 og förum ...... .... ...... en ........ ........ .......... allir .. .... ...... ...............aldrei að vita ........ .......að .. ............ og ..... .... ... . ... þegar .... ..... ....... ..... ... ... að sjálfsögðu ...... ....... .... .. .... .. .... .. .. . .. .. .. .. og förum svo heim sennilega um 6 leitið. Kostnaður við þetta verður 2500 kr. sem þið þurfið að hafa með ykkur.
Kveðja.
Foreldraráð 8.- stúlknaflokks kvenna.

Sunday, September 13, 2009

Foreldrafundurinn.

Ég er búin að ná í alla foreldra og það ætla allir að mæta þannig að tíminn stendur. Mánudagur
kl. 19:30

Sjáumst.
Siggi Sig.

Friday, September 11, 2009

Foreldrafundur.

Á mánudaginn klukkan 19:30 ætla ég að hafa foreldrafund í Valsheimilinu. Þar sem mætingin að undanförnu hefur verið vægast sagt frekar slök finnst mér áríðandi að allir foreldrar mæti og við getum fundið út hvað veldur. Ég geri mér grein fyrir því að vel getur verið að stelpurnar séu eitthvað ósáttar við mig og mínar æfingar en þá er mikilvægt að það komist til skila þannig að ég geti brugðist við. Ég er ekki hafin yfir gagnrýni.
Einnig þarf að ræða einhverskonar uppákomu fyrir hópinn ,því þetta þarf líka að vera gaman.
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Siggi Sig.