Saturday, November 21, 2009

Margrét Ósk með 8 þrista.

Í dag var leikið í 10 flokki kvenna í Vodafone-Höllinni. Við byrjuðum mótið á því að vinna sterkt lið Hrunamanna með 44 stigum gegn 37. Næsta leik töpuðum 34 : 45 fyrir KR þar sem Sara var fjarri góðu gamni þar sem hún meiddist í leiknum gegn Hrunamönnum. Þriðji leikurinn var gegn KFÍ. Stelpurnar léku frábærlega í þessum leik og geisluðu hreinlega af leikgleði en þó Magga sínu mest. Hún gerði sér lítið fyrir og setti niður 8 þriggjastiga skot. Hún þurfti aðeins 14 tilraunir og verður þetta að teljast mjög fín nýting. Sérstaklega þegar við lítum á það að hún er 8. flokks leikmaður. Frábært hjá þér Magga.
Úrlit leikjanna fylgja hér á eftir.

Valur 44 : UMFH 37
KFÍ 35 : KR 65
KFÍ 37 : UMFH 73
Valur 34 : KR 45
KR 12 : UMFH 54
Valur 60 : KFÍ 44


Til gamans má geta þess að Magga skoraði 11 þrista í dag og 6 stig þar fyrir utan.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

1 comment:

  1. :D þetta var besti leikur sem eg hef spilað fyrir utan leikinn á móti Tindastól i Hagaskola þegar eg gerði 26 stig :)

    een já.. hringdiru í Stebba KR? :)
    ætlaði hann að pósta þessu ekv staðar? :)

    ReplyDelete