9. flokkur kvenna var að leika á Íslandsmótinu um helgina í DHL höllinni. fyrsti leikurinn var á móti Heklu og gekk frekar illa hjá mínum stúlkum framan af leiknum. Þegar tók að líða á annan hluta leiksins fór leiðir að skilja og mínar dömur unnu öruggan sigur 45-29. Sara skoraði 13 stig, Elsa 12 og Selma 9 .
Næsti leikur var gegn löskuðu liði Kormáks þar sem einhverjar urðu eftir heima sökum flensu. Ég leifði yngri stelpunum að leika mikið í þessum leik og unnum við hann 33 - 27. Elsa skoraði 10 stig, Sara 7, Magga 5 og Morgan 4.
Fyrsti leikur sunnudagsins var gegn Fjölni og var töluverð taugaveiklun hjá okkar liði fyrir hann. Enda fór það svo að leikurinn var í járnum lengst af en við höfðum sigur að lokum 46 - 40. Elsa skoraði 16 stig, Magga 14, Sara 10 og Selma 8. Elsu þáttur í þessu móti var greinilega hafinn.
Lokaleikurinn var gegn KR sem eins og við voru ósigraðar. Því var þetta hreinn úrslitaleikur. Ég reiknaði með erfiðum leik þar sem ekki yrði hægt að draga andann. En þessar stelpur koma sífelt á óvart. Þær gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn með sóma. Við getum sagt að þær hafi gert út um hann í fyrsta leikhluta og litu aldrei til baka eftir það. Til merkis um hvernig þær spiluðu þá tók ég ekkert leikhlé allan leikinn. Að öðrum ólöstuðum var það Elsa sem átti stórleik, hirti ógrynni frákasta og skoraði 22 stig. Aðrar sem skoruðu voru Sara með 16, Magga 11 og Selma 6.
Þær stóðu sig frábærlega stelpurnar og Elsa var tvímælalaust langbesti maður mótsins. Frábært hjá þér Elsa.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.
Sunday, October 25, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment