Ferðin gekk vel hjá okkur í dag. Þó leiðin hafi styst um 42 km í síðustu viku þá er þetta langt ennþá. Ferðin sat greinilega í okkur til að byrja með. Við vorum í eintómu strögli og veseni með Hörð til að byrja með og var jafnt á öllum tölum en Hörður með frumkvæðið. Í þriðja leikhluta hristum við af okkur sliðruorðið og gerðum út um leikinn. Þannig að leikurinn sem átti að verða léttur reyndist hin mesta raun fyrir okkur. Í fjórða leikhluta gat ég síðan leift mér að hvíla lykilleikmenn og unnum við leikinn 40:24. Þrátt fyrir að við höfum leikið illa þá verður það ekki tekið frá Harðarstelpum að þeim hefur farið heilmikið fram. Vonandi halda þær áfram á sömu braut.
Eftir 25 mínútna hvíld mættum við KFÍ. Það hafa alltaf verið skemmtilegir og spennandi leikir en í dag voru mínar stelpur greinilega komnar í gang og gerðu sér lítið fyrir og kláruðu leikinn í fyrri hálfleik. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 5:14 fyrir okkur í hálfleik 16:29 og ég gat farið að leifa mér þann lúxus að leifa öllum að spila. Þrátt fyrir að ég skipti grimmt inná jukum við forskotið og vorum komin í 25:46 eftir 3. hluta og unnum síðan leikinn 38:53.
Núna erum við í pizzuveislu á bestu sjoppu landsins (samkvæmt könnun) og erum síðan á leið í félagsmiðstöð grunnskólans þar sem við gistum í nótt. Kl. 10 í fyrramálið leikum við síðan æfingaleik við KFÍ. og leggjum af stað heim um kl.13 .
Bestu kveðjur.
Ferðalangar.
Saturday, October 17, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment