Friday, October 9, 2009

Ferð til Ísafjarðar.

Ég minni á að um næstu helgi förum við til Ísafjarðar á fyrsta fjölliðamótið í vetur. Þetta er löng ferð en það jákvæða er að þá eigum við líklega bara eina langa ferð eftir í 9. flokki. Hin mótin verða líklega í þægilegri fjarlægð. Ég vil benda á að ég sendi foreldrunum póst ef einhver hefur ekki fengið hann bið ég ykkur um að hringja í mig því ég er ekki viss um að ég hafi öll póstföng ennþá. Stelpur ef þið lesið þetta minnið foreldra ykkar á að kíkja á tölvupóstinn. Að lokum bendi ég á að æfingin á sunnudag verður kl. 14:10 vegna móts í húsinu. Það er mjög áríðandi að þið mætið á allar æfingar í næstu viku vegna mótsins. Þar fyrir utan er mikilvægt að mæta á allar æfingar.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

No comments:

Post a Comment