Sunday, November 29, 2009

Mótið hjá 9. flokki.

Við lékum í fjölliðamóti 9. flokks um helgina. Mótið fór fram í Smáranum og var að mörgu leiti hið skemmtilegasta mót. Stelpurnar stóðu sig gríðarlega vel í fyrsta leik á móti Grindavík, voru yfir eftir fyrsta leikhluta 9:2 og héldu forystu fram í seinni hálfleik en þá seig Grindavík fram úr. Þrátt fyrir það var mitt lið allan tímann inn í leiknum en töpuðu að lokum 47: 37. Sannarlega fínn leikur hjá stelpunum sem ég er stoltur af.
Næsti leikur var gegn Njarðvíkingum og þróaðist hann svipað framan af. en í 3. leikhluta hrundi okkar leikur og endaði viðureignin með sigri Njarvíkinga 66:46. Stelpurnar sýndu í þessum 2 leikjum að þær vantar einungis herslumuninn til að eiga heima í A-riðli. Í þessum leik meiddist Margrét og var því ekki með á móti Breiðablik og Keflavík. Þrátt fyrir það léku stelpurnar af skynsemi og á köflum feikilega vel gegn Blikunum, en töpuðu samt 66:46. Í þessum leik var það Sara sem fór fyrir liðinu og skoraði 25 stig ,hirti 23 fráköst og varði 5 skot þrátt fyrir að hafa leikið sem bakvörður í fjarveru Möggu.
Leikurinn á móti Keflavík fór eins og búast mátti við búast Keflvíkingar léku eins og við værum með fullskipað úrvalslið og unnu örþreytt Valsliðið 81:19.
Þið megið ekki láta þau úrslit á ykkur fá stelpur þið voruð aðeins 6 í tveimur síðustu leikjunum og lékuð á móti fullskipuðu liði Keflavíkur í fyrri leik þeirra þennan daginn. Við erum ekki fyrsta liðið sem fer illa út úr viðureign við þær. Gleymið þessum leik og munið góðu kaflana úr hinum leikjunum.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

No comments:

Post a Comment