Tuesday, October 27, 2009

Valur : Breiðablik.

Við mættum Breiðablik á mánudagskvöldið á heimavelli og sennilega er best að allir gleymi þeim leik sem fyrst. Við töpuðum illa 19 : 54. Engin af okkur virtist vera tilbúin í leikinn og er ég þar ekki undanskilinn. Við byrjuðum afskaplega illa en þegar upp var staðið reyndist fyrsti leikhluti vera sá skársti í leiknum. En svona er körfuboltinn og ekkert við því að gera annað en að æfa vel og mæta betur stemmdur í næstu turneringu. Það býr hellingur í mínu liði og nú er bara að hrista af sér slenið , loka eyrunum og hætta að láta mótlætið fara í taugarnar á sér.

Þið getið svo miklu miklu meira stelpur.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

P.S.
Á fimmtudag í næstu viku kl: 20:30 mætum við Ármenningum í Laugardalshöllinni. Þar gefst okkur tækifæri til að laga það sem hefur farið úrskeiðis hjá okkur.

Sunday, October 25, 2009

Lokaleikur Ísafjarðarmótsins.

Í kvöld, mánudag, mætum við Breiðablik í Vodafone-höllinni. Þetta er lokaleikur mótsins sem við tókum þátt í á Ísafirði um daginn. Stelpurnar eiga að mæta kl. 20:00. Við eigum góða möguleika í þessum leik ef við mætum vel stemmd, og stelpurnar eru tilbúnar að spila eins og 9. flokkurinn gerði um helgina. Sjáumst hress og kát.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Frábær helgi.

9. flokkur kvenna var að leika á Íslandsmótinu um helgina í DHL höllinni. fyrsti leikurinn var á móti Heklu og gekk frekar illa hjá mínum stúlkum framan af leiknum. Þegar tók að líða á annan hluta leiksins fór leiðir að skilja og mínar dömur unnu öruggan sigur 45-29. Sara skoraði 13 stig, Elsa 12 og Selma 9 .
Næsti leikur var gegn löskuðu liði Kormáks þar sem einhverjar urðu eftir heima sökum flensu. Ég leifði yngri stelpunum að leika mikið í þessum leik og unnum við hann 33 - 27. Elsa skoraði 10 stig, Sara 7, Magga 5 og Morgan 4.
Fyrsti leikur sunnudagsins var gegn Fjölni og var töluverð taugaveiklun hjá okkar liði fyrir hann. Enda fór það svo að leikurinn var í járnum lengst af en við höfðum sigur að lokum 46 - 40. Elsa skoraði 16 stig, Magga 14, Sara 10 og Selma 8. Elsu þáttur í þessu móti var greinilega hafinn.
Lokaleikurinn var gegn KR sem eins og við voru ósigraðar. Því var þetta hreinn úrslitaleikur. Ég reiknaði með erfiðum leik þar sem ekki yrði hægt að draga andann. En þessar stelpur koma sífelt á óvart. Þær gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn með sóma. Við getum sagt að þær hafi gert út um hann í fyrsta leikhluta og litu aldrei til baka eftir það. Til merkis um hvernig þær spiluðu þá tók ég ekkert leikhlé allan leikinn. Að öðrum ólöstuðum var það Elsa sem átti stórleik, hirti ógrynni frákasta og skoraði 22 stig. Aðrar sem skoruðu voru Sara með 16, Magga 11 og Selma 6.

Þær stóðu sig frábærlega stelpurnar og Elsa var tvímælalaust langbesti maður mótsins. Frábært hjá þér Elsa.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Friday, October 23, 2009

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.
Bestu kveðjur.
Valur.

Thursday, October 22, 2009

Æfingin á föstudagskvöld.

Ég gleymdi að segja klukkan hvað æfingin verður á föstudagskvöld. Hún verður um leið og leiknum hjá meistaraflokki lýkur eða rétt fyrir 9. Þetta verður létt æfing þar sem verður aðallega farið í gegnum kerfi og reynt að stilla upp góðri vörn.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Wednesday, October 21, 2009

Aukaæfing.

Við verðum með aukaæfingu á föstudagskvöldið vegna 9.flokksmótsins um helgina. Hér er slóðin á mótasíðuna : http://www.kki.is/mot/mot_1500003258.htm .
Styrktaræfingin verður samt um daginn fyrir stelpurnar sem ekki eiga að keppa um helgina. Þið ættuð endilega að mæta stelpur við tökum vonandi þátt í erfiðum riðli en til þess þurfum við að vinna Breiðablik í lokaleik mótsins sem var á Ísafirði um síðustu helgi. Sá leikur verður á Hlíðarenda á mánudagskvöldið kl 20:30. Eins og stelpurnar spiluðu á Ísafirði eiga þær leikandi að geta klárað þann leik.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.

Bestu kveðjur.
Valur.

Tuesday, October 20, 2009

Flottar stelpur sem við eigum.

Ég rak augun í stutta grein á heimasíðu KFÍ. Miðað við það sem þar er skrifað getum við verið stolt af stelpunum. Hér er slóðin á greinina. http://kfi.is/frettir/Frabaer_helgi_ad_baki_hja_KFI/

Kveðja.
Siggi Sig.

Saturday, October 17, 2009

Fréttir frá Ísafirði.

Ferðin gekk vel hjá okkur í dag. Þó leiðin hafi styst um 42 km í síðustu viku þá er þetta langt ennþá. Ferðin sat greinilega í okkur til að byrja með. Við vorum í eintómu strögli og veseni með Hörð til að byrja með og var jafnt á öllum tölum en Hörður með frumkvæðið. Í þriðja leikhluta hristum við af okkur sliðruorðið og gerðum út um leikinn. Þannig að leikurinn sem átti að verða léttur reyndist hin mesta raun fyrir okkur. Í fjórða leikhluta gat ég síðan leift mér að hvíla lykilleikmenn og unnum við leikinn 40:24. Þrátt fyrir að við höfum leikið illa þá verður það ekki tekið frá Harðarstelpum að þeim hefur farið heilmikið fram. Vonandi halda þær áfram á sömu braut.
Eftir 25 mínútna hvíld mættum við KFÍ. Það hafa alltaf verið skemmtilegir og spennandi leikir en í dag voru mínar stelpur greinilega komnar í gang og gerðu sér lítið fyrir og kláruðu leikinn í fyrri hálfleik. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 5:14 fyrir okkur í hálfleik 16:29 og ég gat farið að leifa mér þann lúxus að leifa öllum að spila. Þrátt fyrir að ég skipti grimmt inná jukum við forskotið og vorum komin í 25:46 eftir 3. hluta og unnum síðan leikinn 38:53.
Núna erum við í pizzuveislu á bestu sjoppu landsins (samkvæmt könnun) og erum síðan á leið í félagsmiðstöð grunnskólans þar sem við gistum í nótt. Kl. 10 í fyrramálið leikum við síðan æfingaleik við KFÍ. og leggjum af stað heim um kl.13 .

Bestu kveðjur.
Ferðalangar.

Friday, October 16, 2009

Aukaæfing.

Í kvöld kl. 20:30 verður aukaæfing hjá okkur í sal 3. Þetta er gamli æfingatíminn en ég hef æfinguna til kl. 21:30 . Við þurfum aðallega að rúlla aðeins í gegnum kerfi og brína vörnina aðeins.
Kv.
Siggi Sig.

Tuesday, October 13, 2009

Fundur.

Eftir æfingu í kvöld ,miðvikudag, ætla ég að hafa stuttan fund þar sem ég læt vita hvernig ferðinn verður háttað ,hvað stelpurnar þurfa að taka með , hver kostnaðurinn verður og reyni eftir fremsta megni að svara þeim spurningum sem upp kunna að koma. Fundurinn byrjar kl. 20:00. Vona að sem flestir sjái sér fært að kíkja. Þetta verður vonandi stuttur og gagnlegur fundur.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Monday, October 12, 2009

Ísafjörður.

Þá nálgast ferðahelgin. Nú er nokkuð ljóst að við munum líklega leigja minibus líkt og þegar við fórum til Patró síðasta vetur. Leikjaniðurröðun verður hagrætt þannig að henti okkur að leggja af stað á laugardagsmorgni og svo ættum við að komast af stað heim uppúr hádegi á sunnudegi aftur. Ég veit ekki alveg hversu mikill kostnaðurinn verður en veit þó að hann verður einungis brot af því sem kostar að fljúga. Núna reynir á foreldraráðið. Mig vantar einhvern til að koma með mér. Í fyrsta lagi til að leysa mig af við aksturinn og síðan til að stelpurnar fái ekki yfir sig nóg af mér. Nú hef ég ekki heyrt hverjar koma örugglega með og væri fínt að heyra í foreldrum annaðhvort í pósti , síma eða sms. Nægar eru boðleiðirnar. Á miðvikudag eftir æfingu væri svo fínt að hitta foreldrana eftir æfingu ( kl 20:00 ) þá ættu allir lausir endar að vera hnýttir. Vona að ég heyri frá ykkur sem allra fyrst.

Kv. Siggi Sig.

Friday, October 9, 2009

Samskipti á blogginu.

Ég hljóp aðeins á mig þegar ég sagði að þið gætuð sett innn athugasemdir við bloggið hjá mér. Það þarf víst sérstakan aðgang til þess. Til þess að fá þann aðgang þurfið þið að stofna gmail netfang sem er frítt og þið finnið leiðina efst á google.is eða com. síðan getið þið sent mér netfangið ykkar og ég bið Ragnhildi eða Lýð að opna á ykkar aðgang þá getur foreldraráðið líka skrifað greinar á bloggið.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Ferð til Ísafjarðar.

Ég minni á að um næstu helgi förum við til Ísafjarðar á fyrsta fjölliðamótið í vetur. Þetta er löng ferð en það jákvæða er að þá eigum við líklega bara eina langa ferð eftir í 9. flokki. Hin mótin verða líklega í þægilegri fjarlægð. Ég vil benda á að ég sendi foreldrunum póst ef einhver hefur ekki fengið hann bið ég ykkur um að hringja í mig því ég er ekki viss um að ég hafi öll póstföng ennþá. Stelpur ef þið lesið þetta minnið foreldra ykkar á að kíkja á tölvupóstinn. Að lokum bendi ég á að æfingin á sunnudag verður kl. 14:10 vegna móts í húsinu. Það er mjög áríðandi að þið mætið á allar æfingar í næstu viku vegna mótsins. Þar fyrir utan er mikilvægt að mæta á allar æfingar.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Saturday, October 3, 2009

Mót í 10. flokki.

Helgina 17. og 18. október þurfum við að leggja land undir fót og fara til Ísafjarðar þar sem við tökum þátt í fyrsta fjölliðamóti vetrarins í 10. flokki. Liðin sem taka þátt í mótinu eru Valur , Hörður , Breiðablik og KFÍ. Ég var bara að frétta þetta fyrir helgi og veit því ekkert um hvernig við komum okkur á staðinn en ég mun kanna hvernig Breiðablik fer og þá hvort hægt er að slá saman í rútu eða hvort verður frekar flogið. Ég læt vita strax og ég veit eitthvað meira.
Bestu kveðjur.
Siggi.