Stelpurnar léku í Keflavík um helgina ái 9. flokki. Við töpuðum öllum leikjunum en þrátt fyrir það get ég verið stoltur af mínum stelpum. Þær sýndu á sér nýja hlið og léku alla leikina á fullu alveg til enda. besti leikurinn var á móti Grindavík sem þær töpuðu með 5 stigum. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá þær berjast svona vel þar sem Sara gat ekki leikð um helgina vegna veirusýkingar sem hrjáir hana. Unglingalandsliðsþjálfarinn var á mótinu og hrósaði stelpunum og bað þær að vera duglegar að æfa í sumar. þá er bara að finna einhverja leið til að halda æfingum gangandi fyrir þær.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.
Monday, March 29, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment