Tuesday, March 30, 2010

5 stelpur komust í úrvalið.

Fyrir mistök þá féll eitt nafn niður á listanum yfir stelpurnar sem náðu í 42 manna hópinn hjá U15.

Brynja Pálína Sigurgeirsdóttir komst í hópinn auk þeirra sem fyrr voru nefndar þ.e. Möggu, Elsu, Selmu og Söru. Enn og aftur til hamingju stelpur. Ég er stoltur af ykkur.

Kv. Siggi Sig.

Monday, March 29, 2010

4 Valsstelpur í 42 manna hóp U-15

Fjórar stelpur frá Val voru valdar í 42 manna hóp sem æfir um páskahelgina fyrir norðurlandamót sem verður í Júní í Danmörku. Eftirfarandi stelpur eru í hópnum.

Elsa Rún Karlsdóttir
Margrét Ósk Einarsdóttir
Sara Diljá Sigurðardóttir og
Selma Skúladóttir.

Gangi ykkur vel stelpur.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

9. flokkur.

Stelpurnar léku í Keflavík um helgina ái 9. flokki. Við töpuðum öllum leikjunum en þrátt fyrir það get ég verið stoltur af mínum stelpum. Þær sýndu á sér nýja hlið og léku alla leikina á fullu alveg til enda. besti leikurinn var á móti Grindavík sem þær töpuðu með 5 stigum. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá þær berjast svona vel þar sem Sara gat ekki leikð um helgina vegna veirusýkingar sem hrjáir hana. Unglingalandsliðsþjálfarinn var á mótinu og hrósaði stelpunum og bað þær að vera duglegar að æfa í sumar. þá er bara að finna einhverja leið til að halda æfingum gangandi fyrir þær.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Wednesday, March 24, 2010

9. flokkur í keflavík um helgina.

Um helgina leikum við í A-riðli í Heiðarskóla í Keflavík. Leikirnir verða sem hér segir:

Laugardag kl 12:00 á móti Njarðvík.
og kl. 14:30 á móti Breiðablik.

Sunnudag kl. 10:00 gegn Grindavík
og kl. 12:30 á móti Keflavík.

Ég set nánari upplýsingar um hvernig við förum á staðinn , hverjir geta keyrt og því um líkt á morgun.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Monday, March 22, 2010

Æfingabúðir Vals um páskana

Æfingabúðir Vals um páskana Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur.

Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.

Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00

Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.

50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.

Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.

Friday, March 19, 2010

Leikir um helgina

Á sunnudag verður fjölliðamót í Vodafone-höllinni. Leikirnir verða eins og hér segir.

Kl. 9:00 gegn KFÍ
Kl. 12:45 gegn Njarðvík
Kl. 15:15 gegn KR.

Mæting fyrir fyrsta leik er kl. 8:30.

Engin æfing verður í dag.

Kveðja.
Siggi Sig.

Wednesday, March 10, 2010

Æfingaleikur.

Á mánudaginn kl 20:10 verður æfingaleikur gegn Reykjavíkurúrvali stúlkna sem fæddar eru 96. Þetta lið er á leið til Helsinki í vor á höfuðborgamót norðurlandanna. Í þessu liði eru tvær Valsstelpur , Elsa Rún og Margrét Ósk, og vonum við að þær standi sig vel og sýni sínar bestu hliðar þó þær séu að leika á móti sínu liði. leikurinn verður í Seljaskóla og þurfa stelpurnar að mæta kl. 19:30.
Föstudagsæfingin fellur niður vegna útleigu á Vodafone höllinni og verður næsta æfing á sunnudag.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.