Nú ætlum við í körfunni í Val að fara af stað með fjáröflun fyrir yngri flokkana.
Um er að ræða sölu á klósettpappír og eldhúsrúllum.
Eftirfarandi pakkar eru í boði:
Pakki 1: Wc pappír 200 blaða 48 rúllur c.a 24m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 – 3000
Pakki 2: WC MAXI 380 blaða 40 rúllur c.a 46m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 3: Lúxus WC 3ja laga 36 rl c.a 26,5m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 4: Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla c.a 12m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 - 3000
Hverjum og einum er frjálst að kaupa eins mikið og hann/hún vill og þið getið verðlagt vöruna eins og ykkur sýnist best. Hver og einn hirðir svo allan ágóða af sinni sölu sem gæti þá nýst til að fjármagna næsta keppnisferðalag.
Allar pantanir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir kl. 20:00 á sunnudagskvöld (28. febrúar) á mailið lydur06@ru.is
Takið fram nafn iðkanda, hvaða pakka þið viljið kaupa og magn. Eins og áður kom fram þá er ykkur frjálst að kaupa alla pakkana og í eins miklu magni og ykkur sýnist.
Upplýsingar um greiðsufyrirkomulag og afhendingu á vöru munu svo berast til ykkar á mánudaginn nk (1. mars).
Friday, February 26, 2010
Wednesday, February 10, 2010
Fjölliðamót 9. flokks.
Um næstu helgi, dagana 13. og 14 febrúar, verður fjölliðamót hjá 9. flokki. Mótið verður á Hellu og fyrsti leikur verður kl 13:15 á laugardaginn, gegn Kormáki. Kl. 17:00 sama dag mætum við síðan Fjölni. Á sunnudag leikum við gegn Heklu kl. 11:30 og seinasti leikurinn byrjar kl. 14:00 og verður á móti KR. Ég bið þá foreldra sem geta keyrt annan hvorn daginn að hafa samband við mig sem fyrst.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.
Bestu kveðjur.
Siggi Sig.
Friday, February 5, 2010
Wednesday, February 3, 2010
Mót um helgina hjá 10. flokki
Um helgina verður mót í KR heimilinu. Fyrsti leikurinn verður kl. 18:45 á laugardagskvöldið og verður hann gegn KR. Kl. 10:00 á sunnudagsmorgun mætum við síðan Herði og lokaleikurinn verður gegn Breiðabliki kl 13:45 á sunnudag.
Eins og venjulega eiga stelpurnar að mæta í síðasta lagi hálftíma fyrir leik.
Sjáumst hress.
Siggi Sig.
Eins og venjulega eiga stelpurnar að mæta í síðasta lagi hálftíma fyrir leik.
Sjáumst hress.
Siggi Sig.
Subscribe to:
Comments (Atom)