Saturday, January 30, 2010

Sunnudagsæfing

Æfingin á sunnudag fellur niður vegna móts sem er í húsinu um helgina.

Bestu kveðjur.
Siggi Sig.

Friday, January 29, 2010

Æfingar falla niður

Æfingar falla niður um helgina vegna landsleiks Íslands í handbolta. Leikir liðsins verða sýndir á risatjaldi í aðalsalnum í Vodafone höllinni og eru allir hvattir til þess að mæta.

Sunday, January 17, 2010

Bikarleikurinn á mánudaginn.

Það er orðið klárt hverjir keyra suðurleftir á mánudag. Kalli pabbi Elsu , Einar pabbi Möggu og ég sjálfur munum sjá um aksturinn. Við förum frá Valsheimilinu kl. 16:00 og vil ég að þið séuð mættar 5 mínútum fyrr. Þetta eru 9. flokksstelpurnar sem eiga að mæta þ.e. þær sem eru fæddar 95 og seinna.

Bestu kveðjur og sjáumst hress á morgun.
Siggi Sig.

Wednesday, January 13, 2010

Bikarleikur við Njarðvík.

Næstkomandi mánudag kl. 17:30 leikum við bikarleik á móti Njarðvíkingum í 9. flokki. Leikurinn verður í Njarðvík í "Ljónagryfjunni. Leiknum var flýtt vegna þess að annars hefði hann lent á sama tíma og nágrannaslagur Keflavíkur og Njarðvíkur í 8 liða úrslitum bikarkeppni karla. Ég vona að einhverjir foreldrar hafi tök á að keyra suðureftir en við þurfum að leggja af stað kl. 16:00. ég bið ykkur um að hringja í mig og láta mig vita ef þið hafið möguleika á þessu.
Kveðja.
Siggi Sig.

Tuesday, January 5, 2010

Rafræn Reykjavík

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is

Monday, January 4, 2010

Æfingar að byrja aftur

Gleðilegt ár.
Æfingarnar eru að byrja aftur og er fyrsta æfingin núna í kvöld. Ég býst ekki við að margar mæti á fyrstu æfinguna en á morgun vonast ég eftir fullri mætingu. Framundan eru leikir í Reykjavíkurmóti og bikarkeppni hjá 9. flokki. Síðan verða turneringar hjá báðum liðum í febrúar þannig að það er nóg af verkefnum framundan. Sjáumst hress og kát á nýju ári.

Kveðja.
Siggi Sig.