Thursday, October 7, 2010

ATH breyttan æfingatíma

Breyttur æfingatími á miðvikudögum. Æfingin byrjar nú kl. 17:15 í stað 17:30

Sunday, October 3, 2010

Fyrsta mót stúlknaflokks

Ekki er enn komin leikjaniðurröðun fyrir Reykjavíkurmót í 10. flokki en mótið verður helgina 6-7 nóvember í Seljaskóla. Set inn leikina um leið og niðurröðunin er klár.

Það er komin leikjaniðurröðun fyrir fyrsta mót í stúlknaflokki. Við erum sett í B-riðil ásamt Tindastóli og Breiðablik. Leikið verður helgina 16. og 17. október og verður leikin tvöföld umferð.

Lau 16. okt.
12:30 Valur-Breiðablik
15:00 Valur-Tindastóll

Sun 17. okt.
10:15 Valur-Tindastóll
11:30 Valur-Breiðablik

Thursday, September 16, 2010

Ritaraborð í Valsmóti

Mætið korteri fyrir leik!
Ég er ekki með símanúmerin hjá öllum stelpunum þannig að látið þær stelpur vita sem eiga að vera með ykkur á ritaraborðinu.
Ef þið komsti ekki á þessum tímum þá verðið þið að redda öðrum í staðinn fyrir ykkur.

Föstudagur
19:00 Valur-Ármann (Selma, Elsa)
19:00 Hamar-Breiðablik (Fanney, Magga)

Laugardagur
15:00 A1-B1 (Brynja, Magga)

Thursday, August 19, 2010

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR

Æfingar hefjast að nýju mánudaginn 23. ágúst.

Upplýsingar um nýja æfingatíma má finna á síðunni hérna hægra megin.

Nýr þjálfari hefur tekið við flokknum og heitir hann Sigurður Friðrik Gunnarsson og er leikmaður meistaraflokks Vals.

Thursday, August 5, 2010

Æfingabúðir

Körfuboltaskóli Vals

Námskeiðið er fyrir börn, 6 ára og eldri og fer fram í glæsilegri aðstöðu í Vodafone höllinni að Hlíðarenda. Lögð verður áhersla á þjálfun í smærri hópum auk þess sem eldri þátttakendur fá einstaklingsþjálfun. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakennarar koma í heimsókn. Skráning fer fram á heimasíðu Vals: http://valur.is/Sumarstarf/Korfuboltaskoli/

Boðið verður upp á tvö viku námskeið fyrir 6-11 ára frá 09:00-12:00
Námskeið I: 9.–13. ágúst
Námskeið II: 16.-20. ágúst

Hálfsmánaðar námskeið fyrir12-15 ára frá 12:30-14:00 frá 9.-20. ágúst.

Hálfsmánaðar námskeið fyrir 16-18 ára frá 16:00-17:30 frá 9.-20. ágúst

Verð á vikunámskeiði hjá yngri er 5.000 kr. en taki þau bæði námskeiðin er verðið 8.000 kr.

Verð á námskeiðinu hjá eldri iðkendum er 6.000 krónur tvær vikur.

10% systkynaafsláttur

Skólastjóri verður Lýður Vignisson yfirþjálfari körfuboltans.

Tuesday, May 11, 2010

Uppskeruhátíð Yngri Flokka

Körfubolti í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 18. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd

Friday, April 23, 2010

Úrslit unglingaflokks karla

Um helgina fara fram úrslit unglingaflokks karla í Smáranum Kópavogi.

Á laugardaginn spila okkar menn í Val gegn Haukum kl. 16:45 og hvetjum við alla iðkendur til þess að mæta og styðja sitt lið til sigurs.

Ef Valur sigrar í þessum leik þá spila þeir til úrslita á sunnudaginn kl. 18:00